
Wednesday May 27, 2026
#13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila
Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar.
Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakkastígnum yfir í það að vera KK. Frá buskinu í Skandinavíu, frá Vegbúanum, KK-bandinu, vináttunni og samstarfinu við Magga Eiríks, blúsinum, áhrifum í tónlist, ferðalögunum, samstarfinu við unga fólkið og mörgu fleira.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
No comments yet. Be the first to say something!