Popparasögur
Hlaðvarp á léttu nótunum þar sem fjallað er um íslenska tónlist og rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.
Episodes

4 days ago
4 days ago
1 hr 32 min
Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari.
Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril sinn í tónlistinni, allt frá Ritvélum framtíðarinnar til samstarfs við HAM, Pál Óskar, Bubba, Egil Ólafs og fleiri. Hún segir frá löngu og gefandi samstarfi sínu við Svavar Knút, tónlistinni, vináttunni og tónleikaferðum þeirra um landið.
Hún segir einnig frá óvæntri leið sinni inn í dansheiminn og hvernig verkefni sem átti upphaflega aðeins að vera nokkrar sýningar hefur þróast í yfir 50 sýningar í meira en 30 löndum.
Hún segir frá hugmyndum sínum að nýrri plötu, fullri skúffu af lögum og þeirri ákvörðun að sleppa tökunum á fyrir fram ákveðnum hugmyndum og leyfa verkefnum að þróast. Hún ræðir um sköpunina, kennsluna, raddþjálfunina, trúða, leikhúsið og hvers vegna hún myndi „geispa golunni“ ef hún væri ekki í einhverju skapandi
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Sep 8, 2026
Sep 8, 2026
41 min
Þá er komið að seinni hluta viðtalsins við Valdimar Guðmundsson, einn allra vinsælasta söngvara þjóðarinnar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Valdimar árið 2010.
Í fyrri hlutanum var farið yfir hljómsveitina Valdimar, vinsælustu lögin, tónleikaferðalögin, lætin og allt það sem fylgdi fyrstu árum sveitarinnar. Í þessum hluta skyggnumst við hins vegar meira inn í önnur verkefni Valdimars og fólkið sem hefur haft áhrif á feril hans.
Hér ræðir hann meðal annars um vinsælustu lögin sem hann hefur sungið, Hljómskálann, samstarfið við Magga Eiríks og Braga Valdimar, og útfarirnar. Hann segir frá leikhúsævintýrum sínum, meðal annars hlutverkinu sem Eddie í Rocky Horror, og hvernig leikhúsið hjálpaði honum að verða öruggari á sviði.
Við förum líka yfir tilurð LÓN, jólatónleikana og jólalögin sem hafa gert desember að stórum hluta af tónlistarárinu hans, þar á meðal lagið Jólin eru okkar. Þá rifjar Valdimar upp kynni sín af Svavari Pétri, Prins póló, og segir frá áhrifum hans á sig.
Þetta er seinni hluti viðtalsins.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Sep 8, 2026
Sep 8, 2026
49 min
Valdimar Guðmundsson hefur verið einn vinsælasti söngvari íslenskrar tónlistar undanfarin ár. Hvort sem það er með hljómsveitinni Valdimar, LÓN, Memfismafíunni eða öðrum verkefnum hefur rödd hans verið áberandi í íslensku tónlistarlífi.
En ferðalagið að þessum tímapunkti hófst löngu áður en Valdimar varð þekktur sem söngvari. Sem ungur strákur lærði hann á básúnu og síðar tónsmíðar, en það var ekki fyrr en um tvítugt sem hann fór að taka sönginn alvarlega.
Síðan gerðist ýmislegt. Lagið „Yfirgefinn“ varð óvænt einn af stóru smellum sveitarinnar, Valdimar varð um tíma þekktur sem „læti-gaurinn“ og nafnið Valdimar reyndist síðar ekki endilega auðveldasta nafn í heimi þegar söngvarinn fór að gefa út tónlist utan sveitarinnar.
Í þessum fyrri hluta viðtalsins rifjar Valdimar upp fyrstu skrefin í tónlistinni, frá því hann söng Bryan Adams fyrir langömmu sína, yfir í fyrstu hljómsveitirnar og stofnun hljómsveitarinnar Valdimars. Hann segir frá uppganginum eftir Undraland, þróun sveitarinnar og tónlistarinnar, samstarfinu við Pétur Ben og hvernig það breytti nálgun þeirra á textagerð.
Við förum líka yfir lögin sem urðu að uppáhaldi hjá hlustendum, tónleikaárin, óvæntar vinsældir og hvernig hljómsveit sem varð til án mikilla væntinga varð að einni allra stærstu á Íslandi.
Þetta er fyrri hluti viðtalsins.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Sep 1, 2026
Sep 1, 2026
1 hr 5 min
Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu.
Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavinafélagsins. Eftir það fór allt á fullt með sveitaböllum um allt land, metsöluplötum og lögum sem urðu stórir smellir.
Hér á eftir talar hann um Hálft í hvoru, Bítlavinafélagið, sólóferilinn og samstarfið og vináttu við Stefán Hilmarsson, Björn Jörund, Björgvin Halldórsson og fleiri.
Hann segir frá Söngvakeppni sjónvarps og Eurovision-ferðum sínum, þar á meðal ótrulegu kvöldi með Mel Gibson í Dublin. Hann rifjar upp hvernig lög eins og „Ég lifi í draumi“, „Nína“ og „Álfheiður Björk“ urðu til. Hann segir líka frá því sem hefur gengið á undanfarna áratugi í tónlistarbransanum, nýju plötunni og því hvað það er sem heldur honum enn gangandi eftir öll þessi ár í tónlistinni.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Aug 25, 2026
Aug 25, 2026
1 hr 6 min
Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure.
En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði, hann flutti aftur til Íslands, tók þátt í stofnun tímaritsins Monitor og lenti í fjölmiðlastríði við Bubba Morthens sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á feril hans.
Eftir mörg ár þar sem ekkert hafði gerst hjá Bigga, ef frá eru taldir örfáir tónleikar með Maus, tók hann þá ákvörðun árið 2021 að fara aftur af stað. Fyrst kom eitt lag, svo annað og síðan heilt nýtt sólóverkefni. Hann fann nýja vinnuaðferð, nýtt fólk, nýtt frelsi og uppgötvaði að hann þurfti engan annan til að geta verið tónlistarmaður.
Í seinni hluta viðtalsins ræðir Biggi um ævintýrið í London, íbúðina ótrúlegu sem hann fékk hjá gítarleikara The Cure, Id og erfiðu viðbrögðin við henni og Silvíu Nótt og ferðina til Los Angeles. Hann segir frá því hvernig hann fann aftur leiðina inn í tónlistina, endurvakningu sólóferilsins, stöðunni með Maus í dag, TikTok-ævintýrinu, nýju tónleikahugmyndinni Heima session og því að vera loksins orðinn algjörlega sjálfstæður tónlistarmaður.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Aug 18, 2026
Aug 18, 2026
1 hr 9 min
Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur.
Í þessum fyrri hluta viðtalsins ræðir Biggi um feril hljómsveitarinnar Maus, pönkið sem hefur fylgt honum alla tíð, upphafið, allar plöturnar, vinsælustu lögin, pressuna sem fylgdi velgengninni, þegar þeir ákváðu að slíta samstarfi um sinn og þegar hann loks sagði upp vinnunni sinni og ákvað að hverfa til London.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Aug 11, 2026
Aug 11, 2026
1 hr 35 min
Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum.
Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Land og syni og öll ævintýrin með þeim bæði hérlendis og erlendis og sunnudagskvöldin með Sælgætisgerðinni.
Hann segir frá þjóðhátíðarlögunum, kántríævintýrinu með Klaufunum og ferðunum til Nashville, sólóverkefnunum sínum, tónlistarlífinu í Vestmannaeyjum, hvalahljóðum, Hljómey, Gosunum og hvað það er sem fær hann til að halda áfram að spila og skapa tónlist.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Jul 28, 2026
Jul 28, 2026
54 min
Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi.
Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæmið um það.
Í þennan þátt mætir maður sem þekkir íslenskan tónlistarbransa mjög vel. Hann fer hér aðeins yfir þessa helgi, stöðuna á tónlistarviðburðum á Íslandi miðað við áður og hvernig þessi helgi, sem býður upp á flesta íslenska tónlistarviðburði, hefur þróast undanfarin ár.
Maðurinn er Einar Bárðarson og fór spjallið fram í sveitasælu á Suðurlandi rétt fyrir þessa miklu tónlistarhelgi til þess að spá í spilin.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Jul 21, 2026
Jul 21, 2026
1 hr 15 min
Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu.
Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður getur stigið á, heldur afrakstur margra ára markvissrar vinnu. Frá fyrstu trúbadoragiggunum á Norðurlandi, Söngvakeppninni og tímanum með Færibandinu og Stuðlabandinu hefur hvert skref verið undirbúningur fyrir þessa klukkustund í Eyjum.
En fæstir átta sig á vinnunni sem liggur að baki, greiningu á eldri Brekkusöngvum, endalausum æfingum, lagavalinu og fleiru.
Í þessu viðtali ræðir Ágúst Þór um ferðalagið að Brekkusöngnum, hvernig hann undirbýr sig fyrir stærsta verkefni ferilsins, lærdóminn sem hann dró af Stuðlabandinu, þegar hann grét í langan tíma eftir Söngvakeppnina og hvers virði það er að taka af skarið.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Jul 14, 2026
Jul 14, 2026
50 min
Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið.
Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins.
Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, SSSól og Sálin hans Jóns míns, hefur leiðin legið á stærstu svið landsins. Í dag er Stuðlabandið ein þekktasta hljómsveit þjóðarinnar og fastur liður á hátíðum eins og Þjóðhátíð, Lopapeysunni og Kótelettunni.
En á bak við gleðina, sviðsljósið og stóru augnablikin er saga um metnað, þrautseigju og vinnusemi.
Í þessu viðtali ræða þeir Marinó G. Lillendahl og Magnús Kjartan Eyjólfsson um ferðalagið frá bílskúrnum að stærstu hátíðum landsins, breytingar á sveitaballamenningunni, kraftinn í lifandi tónlist og hvernig bandið hélt áfram eftir að Magnús greindist með krabbamein árið 2024.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.




