Popparasögur
Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Episodes

May 12, 2026
May 12, 2026
48 min
Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland,
Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurnar með Steve Albini, samstarfið við Bubba, spillerí með Egó, túrana erlendis með Barða í Bang Gang, dúettinn Warmland, sólóplöturnar, Heima með Helga og margt fleira.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

May 5, 2026
May 5, 2026
59 min
Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár.
Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt.
Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist á við andlega og líkamlega erfiðleika.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Apr 28, 2026
Apr 28, 2026
48 min
Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar.
Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben.
Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira.
Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Apr 28, 2026
Apr 28, 2026
40 min
Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar.
Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben.
Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira.
Viðtölin voru tekin upp á Græna hattinum á Akureyri.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Apr 21, 2026
Apr 21, 2026
45 min
Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig.
Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Apr 21, 2026
Apr 21, 2026
55 min
Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig.
Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Apr 14, 2026
Apr 14, 2026
44 min
Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi.
En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar.Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas.Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Apr 7, 2026
Apr 7, 2026
1hr 3 min
Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi.
Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Apr 2, 2026
Apr 2, 2026
59 min
Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum.Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Apr 2, 2026
Apr 2, 2026
59 min
Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli.Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig þeim gekk að takast á við breyttan veruleika.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.




